Um Fánasmiðjuna
Rafskaut ehf kaupir Fánasmiðjuna árið 2010 frá Þórshöfn á Langanesi en þar hafði hún verið í góðum rekstri frá 2005. Var verksmiðjan svo flutti til Ísafjarðar í byrjun ársins 2011 þar sem framleiðsla hófst skömmu síðar.
Það var svo árið 2012 sem hörmungin reið yfir þegar brotist var inn í verksmiðjuna og kveiktur var eldur sem gjör eyðilagði verksmiðjuna og sökudólgurinn ógæfu maður sem ver ekki borgunarmaður fyrir neinu og tryggingarnar eins og þær eru svo tjónið var gífurlegt.
Ákveðið var að auka hlutaféð og endurreisa verksmiðjuna á sama stað og opnaði Fánasmiðjan í janúar 2013. Með nýjum og betri tækjum.
Íslenski fáninn er fyrirferðamestur í framleiðslu okkar og er hægt að fá hann saumaðan með gamla laginu ásamt því að vera prentaður á margskonar efni. Einnig er boðið upp á prentaða fyrirtækja og þjóðfána í öllum stærðum og gerðum.
það eru gerðar aðrar vörur eins og Ljósmyndaprentun, fatamerkingar, auglýsingaskilti, gluggafilmur og bílamerkingar. Nýju prentararnir bjóða upp á fullkomnar prent anir á striga, bílafilmur og ljósmyndapappír. Er nú hægt að prenta myndir í allt að 160 cm breidd og í nær ótakmarkaða lengd.
Einnig erum við með mikið úrval af fánastöngum og vörur tengdar þeim, þetta eru borðfánastangir, hátíðarfánastangir, veggfestar stangir, Fánaborgir og hefðbundnar trefjaplast útistangir.
Staðsetningin á fyrirtækinu á Ísafirði er alls ekki sjálfsagt mál. Flutningskostnaður er útgjaldaliður sem munar um. Tilgangurinn sé hins vegar að styrkja atvinnulíf á Ísafirði og frá því verður ekki vikið. En til þess að lækka kostnaðinn er lagerinn fyrir fánastangirnar fyrir sunnan enda eru þær fluttar inn frá Danmörku. Það er vissulega ekki hlaupið að því að reka framleiðslufyrirtæki á Ísafirði sem selur vörur sínar að mestu út fyrir svæðið. „Það kostar útsjónarsemi og yfirlegu, en það eru líka ótvíræðir kostir að vera hér fyrir vestan.
Tekinn var í notkun nýr fánaprentari í veturinn 2026 sem gerir prentun mun skarpari en áður var hægt og getum við boðið mun betri vöru en áður var hægt.

